Lífið

Októberspá Siggu Kling – Vatnsberi: Vertu eldheitur í ástarjátningum

Sigga Kling skrifar
Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Grasið verður svo sannarlega grænna þegar þú vökvar það. Gefðu skilyrðislaust en mundu að það þýðir ekki að búast við neinu í staðinn, þá verður þú bara fúll.

Innsæi þitt er óvenju sterkt þennan mánuðinn, það er flott og komdu þessum hugmyndum sem þú færð í framkvæmd. Þú færð orkuna til þess!

Það er óheiðarleg manneskja mjög nálægt þér svo gerðu enga samninga nema þeir séu pottþéttir og trúðu ekki öllum fyrir leyndarmálum þínum. Það er ekki í orkunni þinni að gefast upp, þú ert að fara að gefa í og breyta aðeins um stefnu.

Fólk á eftir að óska þér til hamingju því þú ert að fara inn í ævintýri sem byrjar hægt og rólega en endar sem eitthvað stórt.

Mundu bara, elsku Vatnsberi, að það sem virkar eins og kaos núna kemur þér á réttan stað.

Venus er ennþá í Ljóninu, sem er merki í andstæðu við þig. Það þýðir að þú átt að vera eldheitur í ástarjátningum þínum. Núna er tíminn til að koma öllu sem tengist ást á óvart, senda ástarskilaboð og vera spontant í því sem þú gerir í sambandi við ástina.

Mottó: Ást er allt sem ég þarf.

Frægir í Vatnsberanum:  Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg.




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×