Lífið

Októberspá Siggu Kling – Steingeit: Mögnuð ástríða í kringum þig

Sigga Kling skrifar
Elsku fyrirmyndar Steingeitin mín. Það eina sem getur drepið þig þennan mánuðinn er stress. Þú ofandar, ofhugsar og gerir of mikið úr hlutunum.

Þú ert jarðarmerki sem þýðir að þú vilt hafa fast land undir fótum en þú drukknar ekkert þó þú hendir þér í sjóinn og þú ert bara þessi týpa sem finnur alltaf leið út úr öllum vanda.

Mars fer inn í Meyjarmerkið 26. september og það hefur þau áhrif á þig að þú verður alltof stíf og hörð við þig og þá sem eru í kring um þig.

Mundu að það er æðruleysið sem gildir og sumu getur þú hvorki breytt né stjórnað. Þú skalt tala við alla í mildum tón og gera erfiða fólkið að vinum þínum. Til þess þarft þú þolinmæði og þú hefur hana. Leitaðu bara betur í sálinni!

Þú færð skemmtileg tilboð sem þú ættir að taka og þessi tími færir þér dulbúna blessun fyrir framtíð þína. Október er upphitun fyrir næstu mánuði og þá fer allt á flug.

Það er mögnuð ástríða í kringum þig, elsku Steingeit, og ekki vera vond út í ástina, það er ekki hægt að setja hana í Excel-skjal, hún er nefnilega óútreiknanleg.

Mottó: Lífið hefur lag á því að leysa sig sjálft.

Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesú.








Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×