Lífið

Októberspá Siggu Kling – Sporðdreki: Ekki svara fortíðinni

Sigga Kling skrifar
Elsku hjartans Sporðdrekinn minn. Þú ert svo mikil tilfinningavera en þér er oft illa við að láta tilfinningar þínar í ljós.

Fólkið í kringum þig þarf að vita hvað þú vilt og hvernig þér líður og þá sérstaklega þeir sem þú elskar, það gerir ekkert nema gott.

Nú er góður tími til að sækja um spennandi verkefni eða stöðu sem hressir þig við, það er ekki eftir neinu að bíða!

Hristu upp í hlutunum kringum þig og vittu til, ýmislegt mun koma í ljós. Slepptu allri þolinmæði og geymdu hana bara þangað til eftir áramót, þá er gott að nýta hana. Þú ert að að þjálfa huga þinn til að sjá það góða í öllum aðstæðum, það breytir öllu. Ef fortíðinni dettur í hug að hringja í þig skaltu ekki svara því hún hefur ekkert að segja.

Fyrsta skrefið til að fá það sem þú vilt er að hafa hugrekki til að henda því sem þú vilt ekki. Hugrekki þýðir ekki að þú verðir ekki hræddur heldur að þú látir hræðsluna ekki stöðva þig.

Taktu engar ákvarðanir þegar þú ert í vondu skapi, segðu helst bara ekki neitt ef það þyrmir yfir þig.

Þú átt eftir að láta mörgum líða vel og það er þáttur í þessu spennandi karma sem er að koma, fólk gleymir hvað þú segir og hvað þú gerir en það man alltaf eftir því hvernig þú lætur því líða.

Það er sko engin tilviljun hvaða fólk það er sem kemur inn í líf þitt næstu þrjá mánuði og vertu tilbúinn að henda þægindarammanum, elsku Sporðdrekinn minn.

Mottó: Það er gott að elska.

Frægir Sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti, rappari. 




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×