Lífið

Októberspá Siggu Kling – Meyja: Segðu já við því óvænta

Sigga Kling skrifar
Elsku besta Meyjan mín. Þú ert að gera upp alls konar hluti í tengslum við lífið núna.

Þú ert að hugsa, vega og meta ýmislegt og ef þú skoðar stöðuna vel þá sérðu að þú getur vel verið bjartsýn svo vertu sérlega þakklát fyrir það sem þú ert þegar búin að áorka. Það verður til þess að þú heldur áfram á sömu braut.

Það er ekki sterkasta manneskjan sem sigrar, heldur er það sú sem heldur áfram þó hún tapi og lætur ekki bugast.

Þú tekur lífið í áföngum á næstunni og verður með þúsundfalt meiri orku en þú bjóst við og jafnvægið, sem þú þarft svo mikið á að halda, verður til staðar.

Ég ætla alveg að banna þér að vera með slæman móral yfir hlutum, það dregur þig bara niður og drepur orkuna og þú hefur engan tíma til þess.

Tímaskynið virðist vera svolítið að stríða þér í þessum mánuði því þú ætlar að gera svo margt, í svoleiðis álagi getur minnið orðið slæmt og það er bara allt í lagi.

Þér verður boðið upp á eitthvað svo dásamlega skemmtilegt og óvænt, segðu já við því óvænta þá verðurðu svo miklu hamingjusamari en þú hefur verið.

Mottó: Frelsið er súrefni sálar minnar.

Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson, tónlistarmaður.




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×