Lífið

Októberspá Siggu Kling – Ljón: Það er engin fjarstýring til á lífið

Sigga Kling skrifar
Elsku Ljónið mitt. Ekki bera þig saman við neinn annan, gerðu eins og Katrín Tanja, hraustasta kona í heimi. Hún hugsaði ekki um hina keppendurna á heimsleikunum í CrossFit. Hún hafði ekki áhyggjur af því hvað myndi gerast eða hvað myndi ekki gerast, hún ákvað bara gera sitt besta í þeirri grein sem hún var að keppa í hverju sinni.

Líttu á líf þitt sem keppni í að láta þér líða vel. Þú þarft að fylgja hjartanu og þegar hjarta þitt talar til þín þá fylgir því svo góð tilfinning. Heilinn er alls ekki með þetta svo ekki hugsa of mikið.

Þú þarft að hafa töluvert fyrir hlutunum næstu tvo mánuðina, vertu með fókus á það sem þarf að gera og gerðu það bara, just do it! Mundu að það er engin fjarstýring til á lífið, þú þarft að standa upp, ýta á Play og fylgjast með því sem er í gangi.

Það sem virðist vera of gott til að vera satt er líklega ekki satt.

Ástin er allt í kringum þig og hafðu í huga, elsku Ljónið mitt, að öll sambönd þurfa að fara í gegnum bölvaða vitleysu, en það samband sem skiptir máli endist í gegnum allar vitleysur.

Mottó: Vel gert er betra en vel sagt.

Frægir í Ljóninu: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrisæta, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco. 




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×