Lífið

Októberspá Siggu Kling – Fiskur: Mikið daður á dagskrá

Sigga Kling skrifar
Elsku Fiskurinn minn. Undir geislandi yfirborði þínu leynast svo miklar tilfinningar sem þú verður að fá útrás fyrir og þótt þú farir oft fram úr þér þá ertu alltaf skemmtilegastur.

Þú býrð svo sannarlega yfir sjötta skilningarvitinu, hlustaðu á sjálfið, eða sálina þína og þá sérstaklega í kringum fullt tungl. Skoðaðu líka hvað þig dreymir, þú ert á svo hárri tíðni að ef þú hugsar til einhverrar sérstakrar manneskju þá hringir hún eða þú hittir hana stuttu seinna. Þú þarft bara að senda skilaboðin út í kosmósið!

Þú verður mjög ákveðinn í þessum mánuði og lætur fólk ekki sussa á þig. Þú aflar þér mikillar virðingar og sumir munu taka þig til fyrirmyndar.

Þú hefur svo mikla verndunartilfinningu fyrir fólkinu sem þú elskar og það mun koma þér á óvart hversu sterkt það er og fært um að bjarga sér sjálft. Þú þarft bara að sleppa takinu og lífið heldur áfram, það er það eina sem er alveg öruggt.

Það verður nóg að gera hjá þér, meira en þú býst við og þú verður alveg í essinu þínu. Það er að fara í hönd alveg dásamlegur mánuður sem reynir á allan tilfinningaskalann, allt frá gráti til hláturs og mundu, hjartans Fiskur, að þaðan koma bestu minningarnar.

Í ástinni verður mikið daður og því fylgir mikil spenna svo vertu tilbúinn ef þú ert á lausu, en ef þú ert í sambandi þá verður þetta að vera saklaust daður, annars áttu á hættu að brenna þig.

Mottó: Ég stjórna þessari bíómynd sem heitir lífið.



Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Diana Omel listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna.




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×