Enski boltinn

Október 2016 versti mánuðurinn á ferli Guardiola

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola eftir leikinn í gær.
Pep Guardiola eftir leikinn í gær. Vísir/Getty
Pep Guardiola horfði upp á sína menn í Manchester City detta út á móti Manchester United í enska deildabikarnum í gærkvöldi. Juan Mata tryggði United 1-0 sigur.

Þetta var aðeins fjórða tap Pep Guardiola í átján leikjum á móti Jose Mourinho en það sem meira er að City-liðið lék þarna sinn sjötta leik í röð án þess að vinna.

Manchester City liðið vann tíu fyrstu leiki sína undir stjórn Pep Guardiola en á nú enn eftir að vinna leik í október.

Þetta er í fyrsta sinn á ferli Pep Guardiola þar sem lið hans nær ekki að fagna sigri í sex leikjum í röð.

Liðið hefur gert þrjú jafntefli og tapað þremur leikjum í undanförnum sex leikjum. Í öllum þremur tapleikjunum hefur liðið ekki náð að skora mark.

Hér fyrir neðan má sjá þessa röð sigurlausra leikja City-liðsins sem og sigurmark Juan Mata í leiknum í gær.



Sex leikir Manchester City í röð án sigurs:

28. september, Meistaradeildin

3-3 jafntefli við Celtic

2. október, deildin

2-0 tap á móti Tottenham

15. október, deildin

1-1 jafntefli við Everton

19. október, Meistaradeildin

4-0 tap á móti Barcelona

23. október, deildin

1-1 jafntefli við Southampton

26. október, deildabikarins

1-0 tap á móti Manchester United

Sigurmark Mata



Fleiri fréttir

Sjá meira


×