Óklárað uppgjör

Fréttablaðið Fastir pennar 31. janúar 2012 06:00
Óklárað uppgjör
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um rannsókn á einkavæðingu ríkisbankanna, eins og Fréttablaðið sagði frá í gær. Þar vilja þingmennirnir, undir forystu Skúla Helgasonar í Samfylkingu, að skoðað verði ferlið við sölu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Búnaðarbankans og Landsbankans.

Þetta yrði ekki fyrsta rannsóknin á einkavæðingu ríkisbankanna. Ríkisendurskoðun var á sínum tíma, í tveimur áföngum, fengin til að skoða afmarkaða þætti söluferlisins. Sömuleiðis var nokkuð ýtarlegur kafli í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðinguna. Hvorug rannsóknin var hins vegar heildarúttekt á einkavæðingarferlinu. Mörgum spurningum er ósvarað, eins og raunar sést vel þegar greinargerðin með tillögu þingmannanna er lesin.

Flestir geta tekið undir að mistök voru gerð við einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans, ekki sízt þau að falla frá fyrri áformum um dreift eignarhald og selja ráðandi hlut til „kjölfestufjárfesta". Báðir fjárfestahóparnir komust síðan í hóp viðskiptablokkanna sem öllu réðu í íslenzku viðskiptalífi og umgengust bankana fyrst og fremst sem lánveitanda fyrir sjálfa sig.

Undir þessa gagnrýni tók Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsþætti á Rás 1 á sunnudagsmorguninn. Hann vildi þó ekki skrifa upp á að rannsóknir á einkavæðingu hefðu sýnt að þar hefði pólitísk spilling átt sér stað og sagði „alltof langt gengið að komast að þeirri niðurstöðu að fall íslenzka bankakerfisins sé einhvers konar bein afleiðing af því að rangri stefnu hafi verið fylgt við sölu á ríkisbönkunum."

Þetta er kannski rétt eins langt og það nær. Það breytir ekki því að sú mynd, sem gögn um einkavæðingarferlið draga upp, er að reglur og viðmið hafi verið beygð og endurskoðuð til að koma mætti Landsbanka og Búnaðarbanka hvorum um sig í hendur fjárfestahópa sem voru þóknanlegir Sjálfstæðisflokknum annars vegar og Framsóknarflokknum hins vegar. Svo geta menn ráðið því hvort þeir kalla það pólitíska spillingu eða ekki.

Það er jafnframt ein af meginályktunum Rannsóknarnefndar Alþingis í skýrslu hennar að með einkavæðingu bankanna hafi ríkið gefið tóninn fyrir eignarhald í fjármálageiranum og þess vegna hafi ekki verið hægt að taka í taumana þegar þriðja viðskiptablokkin náði yfirráðum í Glitni. Hið þrönga eignarhald var tvímælalaust eitt af því sem stuðlaði að falli bankakerfisins.

Full ástæða er til að rannsaka einkavæðingarferlið ýtarlegar en gert hefur verið, ekki sízt til að geta forðazt að sömu mistök eigi sér stað þegar hlutur ríkisins í nýju bönkunum verður seldur, eins og til stendur á næstu árum.

Framsóknarmenn ákveða sig líklega í dag hvort einhverjir úr þeirra hópi styðja þingsályktunartillöguna. Skúli Helgason sagði í Fréttablaðinu í gær að hann vænti ekki stuðnings við hana úr Sjálfstæðisflokknum.

Það ætti þó að vera sjálfstæðismönnum, rétt eins og framsóknarmönnum, kappsmál að þessi kafli sögunnar verði skoðaður ofan í kjölinn og hverjum steini velt við. Það er einfaldlega hluti af nauðsynlegu og ókláruðu uppgjöri þessara flokka við fortíðina.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Óklárað uppgjör