Skoðun

Okkar ábyrgð

Magnús Guðmundsson skrifar
Það er uggvænleg staðreynd að mansal, vinnu- og kynlífsþrældómur skuli þrífast á Íslandi og það í umtalsverðum mæli. Þessi staðreynd kom fram í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu en þar eru íslensk stjórnvöld einnig gagnrýnd fyrir að taka ekki nægilega vel á glæpum sem þessum. Á síðustu þremur árum hefur enginn verið sakfelldur fyrir mansal eða þrælahald innan íslenska réttarkerfisins sem er í sjálfu sér þungur áfellisdómur yfir sofandahætti eða jafnvel dugleysi stjórnvalda til að taka á þessum skelfilegu glæpum.

Eins og Alda Hrönn Jóhannesdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, benti á í liðinni viku fjölgar mansalstilfellum hér samhliða auknum ferðamannastraumi. Auknar framkvæmdir leiða einnig af sér skort á vinnuafli og skapa rými fyrir óprúttna aðila til þess að bjóða ódýrt vinnuafl með ólöglegum hætti. Þrátt fyrir að umtalsverð umfjöllun hafi verið um þessi mál, bæði á þessu ári og því síðasta m.a. hér á síðum Fréttablaðsins, virðist staða þessara mála vera að renna upp fyrir stjórnvöldum nú fyrst á síðustu vikum. Það ætti í raun ekki að dyljast nokkurri sálu að mansal er hluti af íslenskum veruleika og það í ýmsum atvinnugreinum, s.s. ferðaþjónustu, byggingariðnaði og verksmiðjum og þannig mætti áfram telja auk þess sem augljóslega er mikil þörf fyrir ítarlega rannsókn yfirvalda á ýmiskonar ólöglegri starfsemi sem þrífst mögulega í skjóli aðgerðarleysis yfirvalda.

Það ættu ekki að vera flókin sannindi að þensla, aukin umsvif og fjöldi fólks innan markaðssvæða með fjölgun ferðamanna kalli á aukið eftirlit. Þegar við bætist að hér er um að ræða glæpi sem stór hluti þjóðarinnar getur átt erfitt með að átta sig á að eru að eiga sér stað í nærsamfélagi sínu þá verður að koma til fræðsla. Allt kostar þetta peninga og því fé er vel varið sem fer í eftirlit og fræðslu til þess að byggja upp heilbrigt atvinnulíf og koma í veg fyrir þá skelfilegu glæpi sem eru fólgnir í mansali.

Mansal, vinnu- og kynlífsþrælkun er birtingarmynd vaxandi misskiptingar og fátæktar í heiminum. Fórnarlömbin eru einkum fátæklingar, konur og börn. Einstaklingar sem geta illa varið sig sjálfir fyrir gerendum og er illa kleift að komast út úr þeim aðstæðum sem þeim hefur verið komið í. Til þess þarfnast þeir hjálpar þeirra samfélaga þar sem kraftar þeirra og líf hafa verið nýtt af græðgi og grimmd. Afleiðingarnar fyrir líf þessa fólks eru skelfilegar og við getum ekki lengur látið eins og þetta sé ekki hluti af íslensku samfélagi og þar með á okkar ábyrgð.

Vestræn velferðarríki, á borð við Ísland, sem sitja í efri þrepum hagkerfa heimsins bera mikla ábyrgð og ber að leggja sérstaklega mikið af mörkum til þess að koma í veg fyrir þær þjáningar sem hljótast af þessum völdum sem og að aðstoða fórnarlömb þess mansals sem þegar hefur átt sér stað innan viðkomandi samfélags. Það er því löngu tímabært að íslensk stjórnvöld leggi sitt af mörkum í baráttunni gegn mansali.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×