Innlent

Ókeypis hjónavígslur

Birta Björnsdóttir skrifar
Á laugardaginn kemur býðst gestum og gangandi að koma í Breiðholtskirkju og taka skírn. Svipað fyrirkomulag verður í kirkjunni þann 11.júní næstkomandi þegar pör geta komið og látið gefa sig saman með skömmum fyrirvara.

„Þá hvetjum við fólk sem hefur verið að hugsa um að láta skíra börnin sín, eða láta skíra sig sjálf til að koma til okkar með stuttum fyrirvara og litlum undirbúningi," segir Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Breiðholtskirkju.

„Hugmyndin er fengin frá Svíþjóð þar sem ég hef starfað sem prestur. Þar hefur verið bylgja í þessum svokölluðu drop-in brúðkaupum og skírnum og mér fannt sniðugt að prófa þetta hérna líka."

Bæði hjónavígslan og skírnin verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Hefur Þórhallur orðið var við það að fólk setji kostnaðinn fyrir sig þegar athafnir sem þessar eru annars vegar?

„Það er nú ekki mikill kostnaður sem fylgir athöfninni sjálfri í kirkjunni. Þetta er kannski frekar til að benda á að það þarf ekki alltaf að kosta miklu til. Fólki vex það oft í augum að halda þurfi stóra veislu og annað sem kostað mikið. Það er hægt að hafa hátíðlega stund þó kostnaðurinn sé enginn," segir Þórhallur.

Reglulega berast fregnir af því að sífellt fleiri kjósi að skrá sig úr þjóðkirkjunni. Þórhallur þvertekur fyrir að viðburðirnir séu örþirfaráð hjá kirkjunni til að fá fleiri um borð.

„Já ég hef heyrt að fólk hefur verið að velta því fyrir sér. En það er alls ekki. Þú getur bara kannað hjá kirkjunni, þar er fullbókað í allt sumar bæði í hjónavígslur ogt skírnir."

Þórhallur kvetur þá sem vilja taka skírn nú eða láta gefa sig saman til að setja sig í samband við sig til að fá úthlutað tíma, svo ekki þurfi að grípa til númerakerfis og enginn þurfi að bíða í biðröð.

„Ég hef fengið þá spuringu hvort það sé nóg að mæta einn á staðinn og fá þar úthlutað maka. En það er ekki þjónusta sem við bjóðum uppá, allavega ekki ennþá," segir Þórhallur í gamansömum tón að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×