Innlent

Ók útaf og reyndi að stinga af á hlaupum

Lögreglumenn hlupu manninn uppi.
Lögreglumenn hlupu manninn uppi.
Lögreglan fékk tilkynningu um að bíl hafi verið ekið út af akbraut í Grafarvogi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þegar hún nálgaðist vettvang tók ökumaðurinn til fótanna og reyndi að stinga af en lögreglumenn hlupu hann uppi.

Hann reyndist réttindalaus og undir áhrifum áfengis, og var hann vistaður í fangageymslu.

Hann var líka settur í steininn ökumaðurinn, sem stöðvaður var á Bústaðavegi á þriðja tímanum í nótt, ölvaður og dópaður. Hann var réttindalaus og var bíllinn á stolnum númerum af öðrum bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×