Innlent

Ók próflaus undir áhrifum kannabis

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af allnokkrum ökumönnum um helgina vegna brota á umferðarlögum.

Einn þeirra ók sviptur ökuréttindum og sýnatökur á lögreglustöð staðfestu jafnframt að hann hafði neytt kannabisefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Annar maður ók á girðingu og fór af vettvangi. Lögregla hafði fljótlega upp á viðkomandi, sem var vistaður í fangaklefa vegna gruns um ölvun við aksturinn.

Þrír ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur en einn þeirra mældist á 138 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×