Innlent

Ók fullur upp á lögreglustöð til að fá vin sinn leystan úr haldi

Ölvaður ökumaður ók bíl sínum inn í port lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu um tvö leitið í nótt, gekk inn og heimtaði að fá vin sinn lausan, en hann var í vörslu lögreglu eftir að hafa verið handtekinn fyrir líkamsárás í miðborginni skömmu fyrr.

Ökumaðurinn var líka réttindalaus. Hann var látinn laus eftir sýnatöku, en var þá orðinn bíllaus og vinarlaus, því lögreglan geymir þá nú báða. Þolandi árásarmannsins var fluttur á Slysadeild til aðhlynningar og var svo útskrifaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×