Sport

Óhrein rússnesk hlaupakona þarf að endurgreiða 60 milljónir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rússneska lyfjasvindliðið tekur á sig ýmsar myndir og einhverjir óhreinir rússneskir íþróttamenn eru ekki aðeins dæmdir í keppnisbann því sumir þeirra fá líka stóra reikning í andlitið.

Ein þeirra er rússneski langhlauparinn Liliya Shobukhova en skipuleggendur London maraþonsins hafa nú krafist þess að hún borgi þeim aftur meira en 377 þúsund pund eða meira en 60 milljónir íslenskra króna. BBC segir frá.

Liliya Shobukhova féll á lyfjaprófi eins og fleiri rússneskir frjálsíþróttamenn og var dæmd í 38 mánaða bann.

Shobukhova hafði unnið London maraþonið árið 2010 og fékk verðlaunafé fyrir það sem og að hún fékk pening fyrir að mæta til keppni í London maraþoninu árið eftir.

Nick Bitel, yfirmaður London maraþonsins, segir að peningarnir sem koma til baka frá Liliyu Shobukhovu munu fara til þeirra hlaupara sem hún "svindlaði" á í umræddum hlaupum.  Forráðamenn London maraþonsins þurfa samt hjálp frá Rússum til að innheimta peninginn. Það gæti samt reynst þrautinni þyngri.

Öll úrslit í hlaupum Liliya Shobukhova frá árunum 2009, 2010 og 2011 hafa þegar verið dæmd ógild og hún missti þannig gullverðlaunin sem hún vann í þremur Chicago maraþonum frá 2009 til 2011.

Forráðamenn London maraþonsins hafa þegar tekið sigurinn af Liliya Shobukhova í London maraþoninu 2010 og Aselefech Mergia frá Eþíópíu telst nú hafa unnið það hlaup.

Liliya Shobukhova aðstoðaði Alþjóða lyfjaeftirlitið til að koma upp um víðtækt lyfjasvindl Rússa og fyrir vikið var bann hennar minnkað um sjö mánuði.

Liliya Shobukhova hefur samt sem áður fengið lífstíðarbann frá þátttöku í London maraþoninu og eins öllum fimm stærstu maraþonum heimsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×