Lífið

Óhollusta og nóg af beikoni og poppkorni

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Poppáhugakona Heill kafli í uppskriftabókinni fjallar um popp.Fréttablaðið/Ernir
Poppáhugakona Heill kafli í uppskriftabókinni fjallar um popp.Fréttablaðið/Ernir
„Ef einhver hefði sagt mér fyrir tveimur árum þegar ég byrjaði að blogga að ég myndi gefa út uppskriftabók hefði ég beðið viðkomandi vel að lifa,“ segir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, matarbloggari og mannfræðingur, sem gefur út uppskriftabókina Nenni ekki að elda.

Undirbúningur og gerð bókarinnar gekk vel að hennar sögn. „Ég þurfti að borða svolítið mikið, en ég hef svo sem aldrei slegið hendinni á móti því.“

Líkt og á vefsíðu Guðrúnar Veigu mun popp og beikon skipa stórt hlutverk í bókinni, sem er ekkert hollusturit. „Það er ekkert hollt í þessari bók. Bókin er sex kaflar, það er beikon í öllum köflunum og heill popp-kafli.“

„Ég hef ekkert ótrúlega gaman af því að dúlla mér endalaust í eldhúsinu. Það er alveg hægt að gera eitthvað gott án þess að það taki marga klukkutíma dansandi í kringum pottana,“ segir hún.

„Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari stendur við hliðina á mér á bókamessu um helgina, hann verður með einhverjar dýrindis steikur og ég verð með popp.“

Það kom mörgum á óvart að hún skyldi ráðast í gerð matreiðslubókar. „Pabbi minn er ennþá að átta sig á þessu, honum finnst ég vera versti kokkur í veröldinni. Hann spurði mig hvort hann ætti ekki að panta allt upplagið af bókinni því annars gæti þetta orðið mjög vandræðalegt fyrir mig.“

Á forsíðumynd bókarinnar liggur Guðrún Veiga í baðkeri fullu af poppi með rauðvínsglas í hendi.

Þrátt fyrir að vera mikil poppáhugamanneskja er þetta í fyrsta skipti sem hún fer í poppbað. „Ég er voða lítið í því að baða mig upp úr poppinu, er aðallega bara að borða það.“ Útgáfuhóf verður haldið í Eymundsson 27. nóvember klukkan fimm.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×