Viðskipti erlent

Ógnvekjandi hreyfigeta vélmennis

Samúel Karl Ólason skrifar
Atlas í göngutúr í skóginum.
Atlas í göngutúr í skóginum.
Fyrirtækið Boston Dynamics birti nýverið myndband af nýjustu útfærslu vélmennis þeirra sem ber nafnið Atlas. BD er í eigu Alphabet, móðurfyrirtækis Google, og vinnur að þróun vélmenna meðal annars til björgunarstarfa.

Sjá einnig: Kynna vélhundinn Spot

Auk þess starfar fyrirtækið með hernaðaryfirvöldum í Bandaríkjunum.

Nýjasta myndband fyrirtækisins er af nýjustu útfærslu vélmennisins Atlas. Óhætt er að segja að vélmennið sýni einstaka hreyfigetu á ójöfnu yfirborði. Þá getur vélmennið staðið upp falli það niður. Auk þess má sjá að vélmennið getur lyft kössum og jafnvel elta þá, séu þeir færðir til.

Eflaust hugsa einhverjir um Skynet þegar þeir horfa á þetta myndband. Við skulum bara vona að vélmennið muni ekki eftir manninum sem hrindir því.


Tengdar fréttir

Kynna vélhundinn Spot

Fyrirtækið Boston Dynamics birti á mánudaginn myndband af vélhundinum Spot, sem sýnir einstaka fimi.

Nýtt hervélmenni er óttalaust og krúttlegt

Bandarískt fyrirtæki sem sérhæfir sig í vélfærafræði hefur nú lokið við þróun á heldur undarlegri njósnagræju fyrir bandaríska herinn. Vélmennið hoppar og skoppar eins og fló og getur náð allt að níu metra hæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×