Fótbolti

Ögmundur skall illa á stönginni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Ernir
Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram í knattspyrnu, varð fyrir meiðslum á fyrstu æfingu sinni með Sandnes Ulf í Noregi í dag þar sem hann er á reynslu.

Ögmundur staðfesti í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að hann hefði lent illa á stönginni á markmannsæfingu og mögulega hefði hann brotið bein í fingri.

Ljóst er að Ögmundur verður af þeim sökum ekki í landsliðshópi Íslands sem mætir Kýpur og Noregi í undankeppni HM 11. og 15. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×