Fótbolti

Ögmundur hélt hreinu í jafntefli Hammarby

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ögmundur hélt hreinu í kvöld en Birkir Már var ekki með.
Ögmundur hélt hreinu í kvöld en Birkir Már var ekki með. mynd/guðmundur svansson
Ögmundur Kristinsson hélt hreinu í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum þegar Hammarby gerði markalaust jafntefli við Kalmar á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Ögmundur, sem kom til Hammarby frá Randers í Danmörku í sumar, hefur staðið sig vel í Svíþjóð og fengið mikið hrós fyrir frammistöðu sína í þarlendum fjölmiðlum.

Þetta var þriðja jafntefli Hammarby í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 10. sæti deildarinnar.

Birkir Már Sævarsson lék ekki með Hammarby í kvöld en liðið tekur á móti Örebro í næsta leik sínum í sænsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×