Lífið

Ógeðsleg útgáfa af Sannleikanum eða kontór: Ewan McGregor kúkaði einu sinni á sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ógeðslegur matur.
Ógeðslegur matur.
Söngvarinn Niall Horan og leikararnir Ewan McGregor og Isla Fisher voru gestir hjá spjallþáttastjórnandanum James Corden í vikunni og tóku þau þátt í heldur óvenjulegum leik.

Corden og McGregor voru saman í liðið á móti þeim Horan og Fisher en leikurinn gekk út á það að svara spurningu eða borða ógeðslegan mat. Keppendur fengu spurningu og ef þeir treystu sér ekki til að svara henni, beið þeirra viðbjóðslegur matur.

Eftir nokkrar harðar spurningar kom í ljós að Ewan McGregor hefur kúkað á sig, Sacha Baron Cohen hefur ekki verið í karakter þegar hann hefur verið í rúminu með eiginkonu sinni Isla Fisher. Þau þurftu meðal annars að borða sporðdreka og nautatungu eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×