Enski boltinn

Ofursunnudagur í enska boltanum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það er sannkallaður ofursunnudagur í enska boltanum í dag en tveir flottir leikir fara fram í deildinni.

Manchester City tekur á móti Southampton í Manchester. City hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum þessara liða.

Stórleikur helgarinnar er síðan án efa viðureign Manchester United og Chelsea sem fram fer í London klukkan 14:30 í dag, að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Chelsea hefur ekki tapaði gegn Manchester United í síðustu sjö viðureignum liðanna. Í síðustu 18 leikjum liðanna hefur United aðeins náð að vinna tvívegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×