Sport

Ofurskálin snýr aftur til Los Angeles

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Denver Broncos er ríkjandi meistari í NFL-deildinni.
Denver Broncos er ríkjandi meistari í NFL-deildinni. vísir/getty
Ljóst er hvar leikurinn um Ofurskálina, úrslitaleikur ameríska fótboltans, fer fram næstu fimm árin en eigendur liðanna í deildinni ákváðu í gær hvar leikirnir árin 2019, 2020, og 2021 fara fram. Þetta kemur fram á vef ESPN.

Vitað var að leikið verður um Ofurskálina á NRG-vellinum í Houston á heimavelli Texans á næsta ári og eftir það í nýrri höll Minnesota Vikings árið 2018.

Super Bowl 2019 fer fram í nýrri og stórkostlegri höll Atlanta Falcons í Atlanta, árið eftir verður leikurinn á nýjum velli Miami Dolphins á Flórída og 2021 snýr Ofurskálin aftur til Los Angeles eftir 28 ára bið.

Leikurinn fer þá fram á nýjum leikvangi Los Angeles Rams sem verið er að byggja en St. Louis Rams færði sig um set í byrjun árs og er komið aftur til Los Angeles. Los Angeles hefur ekki átt NFL-lið síðan 1994 þegar Raiders-liðið fluttist þaðan til Oakland.

Síðast fór Super Bowl-leikur fram á Rose Bowl-vellinum í Kaliforníu 31. janúar 1993 en þá rústaði Dallas Cowboys liði Buffalo Bills, 52-17.

Nýr leikvangur Los Angeles Rams verður tveggja ára gamall þegar Super Bowl fer þar fram en leikvangurinn mun kosta 2,6 milljarða dollara og opnar árið 2019.

Los Angeles Rams vildi helst fá leikinn til sín árið 2020 en Stan Kroenke, eigandi Rams sem er einnig eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, getur vel sætt sig við að hýsa Ofurskálina 2021.

„Maður vill hafa þetta fullkomið, ekki satt? Þegar leikurinn kemur aftur til L.A. eftir öll þess ár vill maður hafa þetta fullkomið. Kannski er bara betra að bíða í eitt ár til viðbótar þannig allt verði fullkomið,“ sagði Stan Kroenke eftir fund eigendanna í gær.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×