Innlent

Ofurölvi maður lét 16 ára stúlku keyra sig

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl á Vesturlandsvegi um klukkan níu í gærkvöldi, eftir að tilkynnt hafði verið um athugavert aksturslag við Hvalfjarðargöng.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl á Vesturlandsvegi um klukkan níu í gærkvöldi, eftir að tilkynnt hafði verið um athugavert aksturslag við Hvalfjarðargöng. Vísir/Pjetur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl á Vesturlandsvegi um klukkan níu í gærkvöldi, eftir að tilkynnt hafði verið um athugavert aksturslag við Hvalfjarðargöng. Ökumaðurinn reyndist vera ung stúlka, sextán ára að aldri og því próflaus.

Í bílnum var eldri maður sem var ofurölvi og hafði hann fengið stúlkuna til að aka bílnum samkvæmt dagbók lögreglu.

Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hann er grunaður um hótanir, frelsissviptingu og að hafa falið stúlkunni að aka bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×