Erlent

Ofurhugi ók bifhjóli sínu á öldu | Myndband

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Robbie Maddison gengur ekki alveg heill til skógar. Eða sjávar.
Robbie Maddison gengur ekki alveg heill til skógar. Eða sjávar. skjáskot
Jaðaríþróttamaðurinn Robbie Maddison gerði sér lítið fyrir á dögunum og ók bifhjóli sínu á öldum undan ströndum Tahiti. Ekki er vitað til þess að nokkrum hafi tekist það áður.

Það gerði hann með því að festa skíði undir dekk hjólsins og má sjá afraksturinn hér að neðan.

Myndbandið rataði á vefinn í gær og nú þegar hefur það fengið rúmlega 5 milljón áhorf.

Maddison segist hafa undirbúið sig í tvö ár fyrir aksturinn og að stífar æfingar búi þar að baki, andlegar sem og líkamlegar. Að sögn ofurhugans er þetta það erfiðasta sem hann hefur nokkurn tímann gert á löngum ferli sínum sem jaðaríþróttamaður.

Þrekvirkið vann Maddison í samstarfi við fataframleiðandann DC Shoes og ber verkefnið yfirskriftina Pipe Dream.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×