Bíó og sjónvarp

Ofurhetjurnar komnar í Djúpavík

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Skyndilega er lítið friðsælt þorp á Vestfjörðum orðinn miðdepill kvikmyndaáhugamanna. Þar eru yfir 200 manns nú samankomnir.
Skyndilega er lítið friðsælt þorp á Vestfjörðum orðinn miðdepill kvikmyndaáhugamanna. Þar eru yfir 200 manns nú samankomnir. vísir/stefán
Andrúmsloftið á Ströndum er öðruvísi þessa dagana enda hefjast tökur á tveimur atriðum á Hollywood-stórmyndinni Justice League í dag. Rúmlega 200 manna lið er komið til Djúpavíkur þar sem tökur fara fram. Svartir Range Rover-ar og aðrir lúxusbílar keyra nú um vegina og þyrlur ferja fólk til og frá. Undirbúningur fyrir þessi tvö atriði hefur gengið vel samkvæmt heimildum Fréttablaðsins og eru Hollywood-starfsmenn sagðir ánægðir með samstarfið við íslenska kollega sína.

Ben Affleck leikur Batman í kvikmyndinni Justice League.vísir/getty
Fjölskyldur sem sóttu í friðinn og einveruna vestur á fjörðum fengu lítinn frið um helgina. Hávaði frá þyrlum og aukin umferð lúxusbíla rufu þann frið. Þeir Íslendingar sem vinna að myndinni eru látnir skrifa undir þagnareið og mega því ekki tjá sig um framvindu mála. 

Kvikmyndastjörnurnar Jason Momoa og William Dafoe eru komnar norður en ekki er vitað hvenær Ben Affleck, sem leikur Batman, kemur til landsins en hann tók þátt í að leiklesa handrit Good Will Hunting um helgina í New York.

Öryggisgæsla er töluverð á Djúpavík en þó fékk kvikmyndagerðarmaðurinn William Short, sem staddur er hér á landi til að gera litla heimildarmynd um lokabardaga Grettis Ásmundarsonar, að sitja í mat með þeim sem eru að taka upp myndina. Hann greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni en maturinn er eldaður af Múlakaffi.

Jason Momoa, sem leikur Aqua­man, birti myndir á Instagram-reikningi sínum af Djúpuvík og dásamaði þar haustfegurðina. Momoa er þekktastur fyrir hlutverk sitt í Baywatch og Game of Thrones þar sem hann lék Khal Drogo. William Dafoe var gómaður í miðbæ Reykjavíkur fyrir utan Kalda bar en Dafoe leikur vin Aquaman, sem kallaður er Nuidis Vulko. Dafoe er gamalreyndur leikari og var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Platoon árið 1986. Stefnt er að því að Justice League verði jólamyndin árið 2017, leikstjóri er Zack Snyder.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×