Lífið

Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen situr fyrir nakin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chrissy Teigen ljómar í tímaritinu DuJour.
Chrissy Teigen ljómar í tímaritinu DuJour. vísir
Fyrirsætan Chrissy Teigen situr fyrir nakin í tímaritinu DuJour. Hún fór í myndatöku ásamt eiginmanni sínu John Legend á dögunum.

Teigen, sem er 29 ára , kemur meðal annars fyrir á ströndinni, kviknakinn, en þau hjónin eru í ítarlegu viðtali í tímaritinu.

Teigen starfar sem fyrirsæta og skaust upp á stjörnuhimininn er hún sat fyrir á forsíðu tímaritsins Sport Illustrated árið 2010. Hún á norskan föður og tælenska móður en hefur verið búsett vestanhafs alla sína ævi.

Teigen giftist söngvaranum John Legend árið 2013 og hefur parið vakið athygli fyrir einstaka smekkvísi á rauða dreglinum en þau verja miklum tíma með hvort öðru.

„Okkur langar í mörg börn,“ segir hún meðal annars í viðtalinu í DuJour.

„Draumurinn væri að eignast þrjú til fjögur börn og ættleiða síðan enn fleiri. Svo ég verð sennilega ólétt það sem eftir er af ævi minni.“

Teigen ásamt eiginmanni sínum John Legend.

Tengdar fréttir

Frægt fólk á Íslandi árið 2014

Margar þekktar stjörnur sóttu Ísland heim á árinu sem er að líða. Sumar létu lítið fyrir sér fara á meðan að aðrar voru ekki að fela neitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×