Tíska og hönnun

Ofurfyrirsæta ástfangin af pylsunum á Bæjarins Bestu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Ég lærði svolítið áhugavert um sjálfa mig í þessum tökum. Eitthvað sem ég vissi ekki einu sinni: Ég er lofthrædd!“ segir ofurfyrirsætan Chrissy Teigen í samtali við tímaritið People.

Vísar Chrissy í tökur á auglýsingu fyrir UGG-skó sem fóru fram hér á landi í apríl. People birtir myndir þar sem fylgst er með lífinu bak við tjöldin við tökurnar á Íslandi. Þá birtir tímaritið einnig auglýsinguna fyrir UGG-skóna þar sem íslenskur jökull er í aðalhlutverki.

„Við tókum þessa senu á toppi risastórs jökuls,“ segir Chrissy. „Það var svo fallegt þarna á toppi veraldar,“ bætir hún við.

Chrissy er ein þekktasta fyrirsæta heims og er eiginkona tónlistarmannsins Johns Legend. Í myndum úr tökunum sést að Chrissy fékk sér pylsu á Bæjarins Bestu sem henni fannst mjög góð.

„Það er ekkert leyndarmál að ég elska mat! Ég varð ástfangin af íslenskum mat, sérstaklega íslensku pylsunum. Áður en ég lagði af stað í þetta ferðalag sögðu allir við mig að ég þyrfti að smakka pylsurnar, ekki gleyma pylsunum, á Íslandi eru stórkostlegar pylsur. Og það var rétt!“ segir Chrissy. Þá sá stjörnukokkurinn Völli Snær um að elda sjávarréttasúpu fyrir módelið í íslenskri náttúru.

„Ég man enn eftir bragðinu og allar súpur sem ég fengið mér síðan eru bornar saman við þessa.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×