Innlent

Ofsaveðri spáð á morgun

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Spá fyrir meðalvindhraða kl. 06 miðvikudaginn 30. desember. Rauðir, gulbrúnir og bleikir litir tákna hættulegasta vindinn. Vindaspá þessi er reiknuð af Veðurstofu Íslands með Harmonie veðurlíkaninu.
Spá fyrir meðalvindhraða kl. 06 miðvikudaginn 30. desember. Rauðir, gulbrúnir og bleikir litir tákna hættulegasta vindinn. Vindaspá þessi er reiknuð af Veðurstofu Íslands með Harmonie veðurlíkaninu.
Veðurstofa Íslands varar við ofsaveðri eða fárviðri austantil á landinu í nótt og í fyrramálið, fyrst suðaustanlands. Fólk er því hvatt til að festa lausamuni og eigendur báta til að tryggja báta sína.

Búist er við að í kvöld hvessi, austanstormi eða roki, 20 til 27 metrum á sekúndu. Suðlægari þegar líði á nóttina og gæti vindur náð fárviðri eða allt að 33 metrum á sekúndu á Austfjörðum. Talsvert hægari norðaustan og síðar norðaustan og síðar norðanátt um landið vestanvert. Úrkoma verður í formi rigningar og á köflum talsverð rigning suðaustan- og austantil. Rigning eða slydda á köflum annars staðar. Í fyrramálið snýst suðvestan 18 til 25 með skúrum og síðar éljum en dregur síðan smám saman úr vindi og kólnar.

Samfara svona veðurhæð, lágum loftþrýstingi og stöðu sjávarfalla ( flóð eftir miðnætti austantil á landinu) má búast við að sjávarstaða verði talsvert.

Í viðvörun frá Veðurstofu Ísland segir að langt suður í hafi sé 958 mb ört vaxandi hæð sem fari hratt til norðurs. Gert sé ráð fyrir að loftþrýstingur verði um 934 mb þegar hún komi upp að suðausturströndinni fljótlega eftir miðnætti í kvöld og 933 mb við Melrakkasléttu um klukkan sjö í fyrramálið. Lægðin haldi síðan áfram til norðurs og þá fari veður batnandi.

Stutt spá fyrir landið í kvöld og nótt.


Suðaustan 8-15 m/s og slydda með köflum eða él, en úrkomulítið NA-lands. Hiti um eða yfir frostmarki. Ört vaxandi austan- og norðaustanátt í kvöld, víða 18-23 upp úr miðnætti, en 23-28 og mikil rigning eða slydda á SA- og A-landi. Sunnan 25-33 A-til á landinu seint í nótt og fyrramálið, hvassast austast. Snýst í suðvestan 15-25 á morgun, hvassast norðantil. Rigning eða slydda og síðar él. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.


Tengdar fréttir

Fylgstu með storminum nálgast

Veðurstofan hefur varað við stormi víða á landinu í dag en búast má við roki eða ofsaveðri austantil á landinu.

Djúp lægð á leið yfir landið

Búast má við roki eða ofsaveðri austantil á landinu en í kvöld hvessir ört og í nótt fer mjög djúp lægð norður yfir landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×