Innlent

Ofrukkaðir eldri borgarar vilja endurgreiðslu vegna tannlækninga hið snarasta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haukur Ingibergsson, formaður Landsambands eldri borgara.
Haukur Ingibergsson, formaður Landsambands eldri borgara. Vísir/ERnir
Stjórn Landsambands eldri borgara skorar á Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra að gangast þegar í stað fyrir úrbótum á stöðu eldri borgara sem greiða tugi prósenta meira í tannlæknakostnað en reglugerð kveður á um. Stjórnin fundaði í gær vegna þeirrar „óásættanlegu stöður sem uppi er“.

Fjallað hefur verið um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 undanfarna daga þar sem fram hefur komið að rúmlega 23 þúsund aldraðir og öryrkjar hafi í fyrra greitt rúmlega tvöfalt meira í tannlæknakostnað en reglugerð heilbrigðisráðherra kveður á um. Sjúkratryggingar segja að 800 milljónir króna á ári vanti til að leiðrétta þennan mun.

Í lögum um sjúkratryggingar kemur fram að sjúkratryggingar taki til nauðsynlegra tannlækninga aldraðra, öryrkja og barna yngri en 18 ára. Það kemur þó ekkert fram í lögunum hve stóran hluta af kostnaði við tannlækningar þessara hópa sjúkratryggingum er skylt að greiða en það kemur fram í reglugerð sem heilbrigðisráðherra setti árið 2013.

Það hlutfall eiga sjúkratryggingar að greiða samkvæmt samningum milli Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna. Slíkir samningar hafa ekki verið í gildi frá árinu 2004 og því fá sjúkratryggðir greitt samkvæmt gjaldskrá sem Sjúkratryggingar hafa sett.

Rætt var við Reyni Jónsson, tryggingayfirtannlækni hjá Sjúkratryggingum Íslands, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld. Hann segist skynja óánægju hjá skjólstæðingum Sjúkratrygginga.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að það væri mjög óheppilegt að fólkinu sé veittur réttur í reglugerð en ekki fylgi fjármagn. Vinna hafi staðið yfir í ráðuneytinu undanfarna mánuði í þeirri von að geta endurgreitt fólkinu.

„Það er núna verið að reikna út þennan lið og raunar fleiri aðra sem við gerum ráð fyrir að geta kynnt á næstunni, hvernig verði gripið inn í þetta,“ segir Kristján Þór og segist vona að geta uppfyllt reglugerðina á næsta ári.

Rætt var við Kristján Þór Júlíusson í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×