Glamour

Óförðuð með ellefu vörum

Ritstjórn skrifar
Förðunin hjá Gucci var svo sannarlega ekki í aðalhlutverki, þó hún hafi spilað sitt hlutverk. Fyrirsætan hér fyrir ofan lítur út fyrir að vera óförðuð en er það svo sannarlega ekki.

Það kemur örugglega einhverju á óvart að samtals voru notaðar ellefu snyrtivörur til þess að farða hverja fyrirsætu fyrir sig. 

Förðunarmeistari Gucci, Pat McGrath, hannaði förðunina en með henni vildi hún draga fram náttúrulega beinabyggingu fyrirsætanna, án þess þó að skyggja of mikið. 

Facechart fyrir sýninguna
Til þess að fá húðina sem náttúrulegasta þurrkaði hún umframfarða af kinnunum svo þær yrðu náttúrulega bleikar. „Ég tók farðann af þar sem mér fannst hann vera að gera húðina óeðlilega. Þetta er algjör andstaða við það sem allir eru að gera í dag, með ofur skyggingum og „pönnuköku“ lagaðri húð.“










×