Innlent

Ófaglærðir gefi ekki stungulyf

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sprauta
Sprauta
Áréttað er í bréfi landlæknis til yfirmanna á hjúkrunarheimilum, heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum að brýnt sé að koma í veg fyrir „lyfjaatvik“ í heilbrigðisþjónustu.

Á vef landlæknis segir að bréfið hafi verið sent 12. febrúar til að bregðast við fjölda fyrirspurna til landlæknis um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum.

Af öryggisástæðum mæli embættið gegn því að ófaglært starfsfólk gefi stungulyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×