Lífið

Ófædda barnið er sannkölluð gjöf

Shakira ásamt Milan sem verður tveggja ára í janúar.
Shakira ásamt Milan sem verður tveggja ára í janúar. Nordicphotos/Getty
Shakira segir að ófætt barn hennar sé „sannkölluð gjöf“ handa syni hennar Milan sem er eins árs. Hún segir hann mjög spenntan fyrir því að eignast lítinn bróður.

Kólumbíska söngkonan er komin fimm mánuði á leið með annað barn sitt og kærastans, Gerards Piqué, sem spilar fótbolta með Barselóna. „Það verður sannkölluð gjöf fyrir Milan að eignast bróður. Ég væri til í að eignast stelpu einhvern tímann en við sjáum til. Maður veit aldrei hvað gerist,“ sagði Shakira í brasilíska sjónvarpsþættinum Espetacular.

„Eins og staðan er núna er ég mjög hamingjusöm vegna þess að ég elska stráka líka.“

Nýlega sagði hin 37 ára gamla söngkona að sig dreymdi um að eignast tuttugu börn með Piqué en hún hefur samt nóg að gera við að líta eftir Milan, sem verður tveggja ára í janúar. „Ég reyni að vera með honum eins mikið og ég get. Ég passa vel upp á hann og vil að hann borði vel og á réttum tímum. Hann þarf líka að sofa vel. Þegar hann gerir það er ég ánægð.“

Shakira og Piqué byrjuðu saman árið 2011 og eru mjög hamingjusöm saman. „Fjölskyldan skiptir hann miklu máli. Hann er mikill fjölskyldumaður. Lífsgildi okkar eru þau sömu og það skiptir mjög miklu máli. Þess vegna er samband okkar svona gott.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×