Ráðherra getur ekki stöðvað kaup Magma Energy í HS Orku á grundvelli heimildar í lögum þar sem of langur tími er liðinn. Ef kaupsamningur verður samt ógiltur vegna þrýstings frá stjórnvöldum verður HS Orka áfram í eigu útlendinga. Forstjóri Magma á Íslandi segir fyrirtækið opið fyrir forkaupsrétti ríkisins á HS Orku.
Legið hefur fyrir í rúmt ár að það var sænskt eignarhaldsfélag, í raun skúffufélag, í eigu kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy sem stóð á bak við kaupin í HS Orku, en Magma eignaðist fyrst hlut í HS Orku í júlí 2009 þegar fyrirtækið keypti 10 prósenta hlut af Geysi Green Energy. Í vor keypti Magma síðan meirihluta Í HS Orku af Geysi Green. Með eignarhlutnum í HS Orku fylgir enginn eignarréttur að auðlindum á Suðurnesjum því þær eru í eigu Reykjanesbæjar, heldur tímabundinn afnotaréttur að auðlindunum.
Samkvæmt lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hefur efnahags- og viðskiptaráðherra, sem hefur eftirlit með framkvæmd laganna, heimild til að stöðva erlenda fjárfestingu ef hann telur að fjárfestingin ógni öryggi landsins, gangi gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði. Þetta er svo allt háð túlkun, en í lögunum kemur skýrt fram að ráðherra verði að tilkynna um ákvörðun sína innan átta vikna frá því að honum barst tilkynning um hana.
Þannig að jafnvel þótt að vilji væri fyrir hendi hjá efnahags- og viðskiptaráðherra að túlka ákvæði laganna þannig að fjárfesting Magma í HS Orku ógnaði almannaöryggi þá er of langur tími liðinn frá kaupunum svo þessu ákvæði verði beitt. En ef svo færi að einhverjum öðrum meðulum yrði beitt, t.d ef stjórnvöld þröngvuðu ógildingu kaupsamningsins upp á kanadíska orkufyrirtækið með einhverjum hætti, hvað tæki við?
Magma keypti sinn hlut í HS Orku af Geysi Green Energy, eins og áður segir, sem er í dag í eigu Íslandsbanka sem er svo aftur í eigu erlendra kröfuhafa Glitnis. ISB Holding, dótturfélag skilanefndar Glitnis á 95 prósenta hlut í bankanum. Ef kaupin myndu ganga til baka væri það ekki lausn á vandanum ef sjónarmiðið væri að halda tímabundnum afnotarétti á auðlindunum í eigu Íslendinga, því þá væri sú staða komin upp að eignin væri undir óbeinum yfirráðum erlendra kröfuhafa Glitnis. Í þessu samhengi má benda á að skilanefnd Glitnis hefur sett 95 prósenta hlut sinn í Íslandsbanka í sölumeðferð og falið svissneska bankanum UBS að annast hana. Er stefnt að því að selja bankann innan fimm ára.
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy á Íslandi, sagði í samtali við fréttastofu í dag ekki geta skilið hvernig ríkið ætlaði sér að reyna að ógilda kaup fyrirtækisins á hlutnum í HS Orku. Ef sú leið yrði farin, þó hann gæti ekki ímyndað sér í hverju hún væri fólgin, myndi fyrirtækið skoða stöðu sína í kjölfarið. Ásgeir sagði að ekki hefði verið rætt við fulltrúa stjórnvalda um kaup ríkisins á hlut Magma í HS Orku, hins vegar sagði Ásgeir að rætt hefði verið um forkaupsrétt ríkisins ef Magma ákvæði að selja og sagði hann að Magma hefði tekið vel í hugmyndir ríkisins um slíkt.
Rætt hefur verið í fjölmiðlum um almenna lögbindingu slíks forkaupsréttar á orkufyrirtækjum almennt, en miðað við þessi viðbrögð Magma Energy væri hægt að ná slíku markmiði í tilviki eignarhlutar Magma í HS Orku með einföldum samningum við fyrirtækið.