Viðskipti innlent

Of Monsters and Men skiluðu tapi en áttu 191 milljón

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hljómsveitin hefur heldur betur slegið í gegn.
Hljómsveitin hefur heldur betur slegið í gegn. Vísir
Tveggja og hálfs milljón króna tap var á rekstri félags sem heldur utan um starfsemi hljómsveitarinnar Of Monsters and Men. Félagið átti hinsvegar handbært fé upp á 182 milljón króna og heildareignir þess rúm 191 milljón króna. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins, Skrímsl, fyrir árið 2013 sem skilað var í haust.

Hljómsveitin hefur slegið í gegn víða um heim en hún átti til að mynda lög í Hollywood-myndunum The Hunger Games og The Secret Life of Walter Mitty. Platan My Head is An Animal, sem plötuútgáfa á vegum Universal gat út í Bandaríkjunum, náði platínusölu vestanhafs en það þýðir að yfir milljón eintök hafi selst.

RÚV hefur eftir Þórhalli Andréssyni, framkvæmdastjóra félagsins, að Universal hafi greitt hljómsveitinni fyrirframgreiðslu sem á að standa straum af kostnaði við gerð nýrrar plötu. Óljóst er hversu há upphæð það sé en peningalegar eignir félagsins jukust um 114 milljónir króna árið 2013.

Eigendur félagsins eru meðlimir hljómsveitarinnar, þau Arnar Rósenkranz Hilmarsson, Brynjar Leifsson, Kristján Páll Kristjánsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson. Faðir Ragnars, Þórhallur, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×