Stærsta vefverslun veraldar, Amazon, hefur valið plötuna My Head is an Animal eftir íslensku hljómsveitina Of Monsters and Men sem bestu hljómplötuna það sem af er árinu.
Á meðal þeirra hljómsveita sem eru á listanum eru Gotye með hljómplötuna Making Mirrors, Snow Patrol með Fallen Empires og J.D. McPherson með Signs & Signifiers.
My Head is an Animal er nú á sérstöku tilboðsverði hjá Amazon og kostar platan 3 dollara í stafrænu formi.
Of Monsters and Men hefur notið gríðarlegra vinsælda síðustu misseri. Það var síðan í síðustu viku sem greint var frá því að hljómsveitin muni koma fram í spjallþætti Jays Leno, 29. júní næstkomandi.