Bíó og sjónvarp

Of gömul fyrir fimmtugan

Guðrún Ansnes skrifar
Maggie varpar ljósi á ömurlegheitin sem þrífast í Hollywood og eflaust víðar.
Maggie varpar ljósi á ömurlegheitin sem þrífast í Hollywood og eflaust víðar.
Maggie Gyllenhaal sagði frá því í viðtali við The Wrap á dögunum að kvikmyndabransinn í Hollywood væri lítið annað en hópur hræsnara og svæsinna karlrembna.

Þetta rökstuddi Maggie með afar biturri reynslusögu, en þegar leikkonan var þrjátíu og sjö ára gömul var henni hafnað um hlutverk af leikstjórum kvikmyndar, þar sem hún þótti heldur til of gömul til að leika hjásvæfu fimmtíu og tveggja ára gamals karls.

Maggie þótti sumsé vera komin af léttasta skeiði og ætti því ekkert í svona hlutverk. Sagðist Maggie aldrei hafa verið eins niðurlægð í lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×