Innlent

Oddviti gerður að sveitarstjóra

garðar örn úlfarsson skrifar
Eva Björk Harðardóttir.
Eva Björk Harðardóttir.
Þar til ráðinn hefur verið nýr sveitarstjóri í Skaftárhreppi mun Eva Björk Harðardóttir oddviti tímabundið vera í hálfu starfi sem sveitarstjóri.

Minnihlutinn í sveitarstjórninni lýsti sig andvígan þessari tilhögun með vísan til þess að nú væri unnið að greinargerð vegna stefnu Veiðifélags Grenlækjar og Geila ehf. á hendur sveitarfélaginu. „Oddviti hefur lýst sig vanhæfa vegna fjölskyldutengsla í þessu mikilvæga hagsmunamáli,“ benti minnihlutinn á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×