Handbolti

Oddur skoraði 6 mörk í sigri Emsdetten

Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Huttenberg.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Huttenberg. Vísir/Aðsend
Fannar Friðgeirsson skoraði 4 mörk þegar lið hans Grosswallstadt bar sigurorð á Bad Schwartau, 23-21, á heimavelli.

Huttenberg, liðið sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, þurfti hins vegar að sætta sig við tap á heimavelli gegn Bittenfeld, 21-24. Ragnar Jóhannsson, leikmaður Huttenberg, kom ekkert við sögu í leiknum vegna meiðsla.

Þá vann Íslendingaliðið Emsdetten eins marks sigur á Rimpar Wölfe á útivelli, 29-28. Oddur Grétarsson skoraði 6 mörk fyrir Emsdetten og Anton Rúnarsson eitt. Ernir Arnarson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×