Golf

Oddur Óli vann Einvígið á Nesinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oddur Óli vann Einvígið á Nesinu í fyrsta sinn.
Oddur Óli vann Einvígið á Nesinu í fyrsta sinn. mynd/gsí
Einvígið á Nesinu, árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express, fór fram á Nesvellinum í dag. Að venju var tíu af okkar bestu kylfingum var boðið til leiks.

Þetta var í 20. sinn sem Einvígið á Nesinu er haldið en að þessu sinni var leikið í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna.

Heimamaðurinn Oddur Óli Jónasson varð hlutskarpastur á mótinu í ár.

Eins og venjulega voru níu holur leiknar og datt síðasti kylfingurinn á hverri holu út, þar til að einn stóð eftir.

Á áttundu holunni stóðu þeir Oddur Óli, Aron Snær Júlíusson og Björgvin Sigurbergsson eftir. Sá síðastnefndi féll þar úr leik og því stóðu Oddur Óli og Aron Snær, sigurvegarinn frá því í fyrra, einir eftir.

Þeir léku báðir holuna á pari og því þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit. Þar hafði Oddur Óli betur og stóð hann því uppi sem sigurvegari.

Þess má geta að mótinu verða gerð skil í sérstökum þætti sem verður sýndur á Stöð 2 Sport á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×