Innlent

Oddi flytur inn einnota umbúðir er verða að mold

Svavar Hávarðsson skrifar
Einnota plastumbúðir liggja úti um allt – á leið sinni í sjóinn.
Einnota plastumbúðir liggja úti um allt – á leið sinni í sjóinn. vísir/anton
Prentsmiðjan Oddi, sem jafnframt er stór framleiðandi umbúða, mun framvegis bjóða íslenskum neytendum, framleiðendum og söluaðilum upp á umbúðir úr náttúrulegum jurtaefnum sem brotna niður í náttúrunni líkt og annar lífrænn úrgangur.

Þessi viðbót í rekstri fyrirtækisins er sett til höfuðs einnota plastumbúðum sem eru orðnar meiriháttar umhverfisvandamál. Sameinuðu þjóðirnar hófu í gær sérstakt átak gegn plastmengun heimshafanna.

Kristján Geir Gunnarsson
Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Odda, segir það vel þekkta staðreynd að mjög lítill hluti af öllu plasti sem fellur til á heimilum landsmanna fari í endurvinnslu.

Hluti af þessum plastúrgangi er einnota umbúðir utan af tilbúnum matvælum og ferskvöru eins og grænmeti, fiski og kjöti. Kannanir sýni á sama tíma að þessar einnota umbúðir enda oftar en ekki í heimilissorpinu og urðun, í stað þess að vera nýtt til endurvinnslu. Vörulínan sem Oddi býður brotnar niður og verður einfaldlega að mold, og á vel heima í moltukassanum.

„PLA-umbúðirnar eru nýjung á Íslandi og geta leyst af hólmi flestar af þeim einnota neytendaumbúðum sem við notum í viku hverri. Þar má t.d. nefna einnota kaffiglös, umbúðir um samlokur, salöt og önnur tilbúin matvæli og ílát fyrir ferska innlenda framleiðslu,“ segir Kristján Geir sem bætir við að hér skipti kolefnissporið miklu máli, en Oddi vill minnka eins og hægt er kolefnisspor framleiðslu og innflutningsvara fyrirtækisins.

Hér verður munurinn áþreifanlegur þar sem allt að 60 prósent minni orku þarf til að framleiða einnota jarðgeranlegar PLA-vörur en sambærilegar plastvörur og þær eru því mun jákvæðari gagnvart loftslaginu og markmiðum um lægri kolefnislosun en þær einnota umbúðir sem eru almennt nýttar á Íslandi í dag að sögn Kristjáns Geirs.

Kristján Geir segir það tilfinningu sína að viðhorfsbreyting sé að verða hér á landi hvað varðar plastnotkun og í umhverfismálum almennt.

„Umbúðir er sorp, en við komumst ekki hjá því að nota þær, því þær eru nauðsynlegar til að tryggja ferskleika vörunnar og þær eru sterkt verkfæri til að minnka matarsóun. Því viljum við gera þetta eins vel og við mögulega getum,“ segir hann.

Peningar skipta máli í þessu samhengi, og Kristján Geir segir að vissulega séu umhverfisvænu umbúðirnar dýrari en plastið. Hins vegar finnur Oddi fyrir áhuga á markaðnum, enda séu sífellt fleiri meðvitaðir um samfélagslega ábyrgð sína þegar kemur að umhverfismálum – og það eigi líka við um fyrirtækin.

„Við sem þjóð verðum að hugsa um þessa hluti,“ segir Kristján Geir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×