Erlent

Obama vill stöðva Rússa

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Bandaríkjaforseti kom við í Eistlandi á leiðinni til Wales.
Bandaríkjaforseti kom við í Eistlandi á leiðinni til Wales. Vísir/AP
Uppreisnarmenn í Úkraínu taka dræmt í vopnahléshugmyndir Pútíns Rússlandsforseta, og þótt Úkraínustjórn hafi fallist á „vopnahlésferli“ þá segist Porosjenkó Úkraínuforseti ekki treysta neinum áformum Pútíns.

Pútín kynnti vopnahléshugmyndir sínar í Mongólíu í gær, þar sem hann var í opinberri heimsókn. Hann lagði áherslu á að Úkraínuher og þær sjálfboðaliðahersveitir sem barist hafa með honum hætti þegar í stað öllum hernaðaraðgerðum í austanverðri Úkraínu.

Hann hafði áður rætt þær við Porosjenkó á fundi þeirra í Hvíta-Rússlandi fyrr í vikunni. Skilyrði Pútíns eru í meginatriðum þau sömu og hann hefur áður kynnt og í fullu samræmi við þá afstöðu hans, að hernaðaraðgerðir Úkraínustjórnar gegn uppreisnarmönnum séu óréttmætar.

Obama Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa mikla trú á þessum vopnahlésáformum, en gerir kröfur til Rússa um beinar aðgerðir: „Við höfum ekki séð mikið koma út úr þessum svokölluðu vopnahléum, sem tilkynnt hefur verið um,“ sagði hann í Eistlandi í gær. „Að því sögðu, þá er það svo að ef Rússar verða í raun tilbúnir til þess að hætta að fjármagna, vopna, þjálfa og í mörgum tilvikum að senda rússneska hermenn til aðgerða í Úkraínu og taka alvarlega hugmyndir um pólitíska lausn, þá er það nokkuð sem við öllum vonumst til.“

Obama sagði þetta í Eistlandi í gær þar sem hann reyndi að stappa stálinu í Eystrasaltsþjóðirnar. Meðal íbúa Eystrasaltsríkjanna hefur óróleiki gert vart við sig vegna yfirgangs Rússa í austanverðri Úkraínu.

„Þið hafið misst sjálfstæðið áður, en með NATO munið þið aldrei glata því aftur,“ sagði Obama, en hann heldur til Wales í dag þar sem hann situr tveggja daga leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins.

Hann hótar því að NATO muni fara í hart gegn Rússum: „Við munum aldrei fallast á hernám Rússa og innlimun Krímskaga eða annarra hluta Úkraínu.“

Eitt helsta umræðuefni NATO-fundarins verða átökin í Úkraínu. Meðal annars verða þar rædd áform um að NATO sendi herlið til nágrannaríkja Rússlands sem geti brugðist við með litlum fyrirvara.

Þá hafa nokkur NATO-ríki kynnt áform um heræfingar í vestanverðri Úkraínu, en Pútín segir þær heræfingar vera beina ögrun.

Meðal fulltrúa á fundinum í Wales verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×