Lífið

Obama rústaði Donald Trump hjá Jimmy Kimmel

Stefán Árni Pálsson skrifar
Obama var frábær hjá Kimmel.
Obama var frábær hjá Kimmel.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, mætti í spjallþátt Jimmy Kimmel í vikunni og tók þátt í lið sem Kimmel kallar Mean Tweets. Þar mætir fólk í þáttinn og les upp ógeðslega tíst sem skrifuð hafa verið um þau.

„Obama er Nickleback týpan af forsetum,“ stóð í einu tísti um Obama. Forsetinn las upp mörg rætin tíst um sjálfan sig og er í raun ótrúlegt hvað fólk skrifar á netið.

Síðan las hann upp tíst frá @realDonaldTrump, sem er vissulega sjálfur Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana til embættis forseta Bandaríkjanna. Hann skrifaði; „Obama verður minnst sem versta forseta í sögu Bandaríkjanna.“

Obama svaraði á frábæran hátt; „Í það minnsta mun fólk muna eftir mér sem forseta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×