Erlent

Obama hyggst aflétta vopnasölubanni til Víetnam

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Barack Obama.
Barack Obama. Vísir/EPA
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að vopnasölubanni til Víetnam verði að fullu aflétt innan tíðar.

Þetta teljast mikil tíðindi því Bandaríkjamenn og Víetnamar börðust á banaspjót á seinni hluta síðustu aldar og endaði stríðið með ósigri Bandaríkjamanna.

Síðan þá hafa samskiptin verið lítil en Obama er nú í heimsókn í landinu og gaf hann yfirlýsinguna í ræðu sem hann hélt eftir að hafa fundað með helstu leiðtogum kommúnistastjórnarinnar í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×