Erlent

Obama hvetur til menntunar og virðingar fyrir lýðræðinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Barack Obama Bandaríkjaforseti brýndi fyrir ríkjum Afríku í dag að efla menntun ungs fólks í álfunni og virða lýðræðislegar leikreglur. Það væri rangt sem sumir þrásetnir leiðtogar héldu fram, að þeir einir gætu bjargað löndum sínum.

Obama er fyrsti forseti Bandaríkjanna til að ávarpa þing bandalags fimmtíu og fjögurra Afríkuríkja en það var sett í Addis Ababa í Eþíópíu í dag. En í gær gafst forsetanum tækifæri til að skoða mannvistarleifar konu sem kölluð hefur verið Lucy og var uppi fyrir 3,2 milljónum ára og allt mannkyn getur rakið ættir sínar til.  Obama var vel fagnað af þingfulltrúum þótt hann sendi sumum þeirra föst skot í ávarpi sínu.

Forsetinn sagði alla hagfræðinga sammála um að ríki þar sem væri fjölmennar ungar kynslóðir ættu meiri möguleika á að vaxa.

„En aðeins ef þetta unga fólk fær þjálfun. Við þurfum ekki annað en að líta á Miðausturlönd og Norður-Afríku til að sjá að mikill fjöldi ungs fólks með enga vinnu og bældar raddir getur valdið óstöðugleika og ringulreið,“ sagði Obama.

Stjórnarfar í ríkjum Afríku er afar mismunandi allt frá herforingjastjórnum til lýðræðisstjórna og frelsi fjölmiðla þar er með misjöfnum hætti. Obama minnti á að kosningar einar og sér þýddu ekki að lýðræði ríkti.

Leiðtogar lýðræðisríkja þyrftu sjálfir að fylgja leikreglunum lýðræðisins en ekki freistast til að breyta reglunum í miðjum klíðum til að framlengja persónuleg völd sín sem oft ylli óstöðugleika og ófriði.

„Og stundum heyrum við leiðtoga segja: Ég er eini maðurinn sem getur haldið þessari þjóð saman. Ef það er rétt hefur þessum leiðtoga mistekist að byggja upp þjóð sína. Ég held að ég sé býsna góður forseti. Ef ég biði mig fram aftur held ég að ég gæti unnið. En ég get það ekki. Það er margt sem ég vildi gera til að koma Bandaríkjunum áfram, en lögin eru lögin,“ sagði Obama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×