Innlent

Obama ekki fyrstur til að angra Íslendinga með tali um Leif heppna

Bjarki Ármannsson skrifar
Obama og Ford hafa báðir sært Íslendinga (a.m.k. suma) með tali sínu um Leif.
Obama og Ford hafa báðir sært Íslendinga (a.m.k. suma) með tali sínu um Leif. Vísir
Ummæli Barack Obama Bandaríkjaforseta á degi Leifs Eiríkssonar í síðustu viku vöktu nokkra athygli hér á landi en hann nýtti tækifærið til að ræða sameiginlega sögu Noregs og Bandaríkjanna. Ennfremur sagði Obama að landafundur Leifs Eiríkssonar marki upphaf vináttu Noregs og Bandaríkjanna.

Við Íslendingar höfum í gegnum tíðina viljað eigna okkur landkönnuðinn en samtímalegar heimildir um hann skilgreina hann ekki nákvæmlega sem Íslending, Grænlending eða Norðmann. Þess ber þó að geta að Obama talaði um Leif sem son Íslands en barnabarn Noregs.

Obama er ekki fyrsti Bandaríkjaforsetinn sem særir þjóðerniskennd Íslendinga með óvarlegu orðalagi um Leif heppna en það tókst Gerald Ford einnig.

Gerald Ford safnið í Michigan deilir á Facebook-síðu sinni í dag frásögn af því þegar Haraldur Kröyer, þáverandi sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum, kvartaði við utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna yfir því að landkönnuðurinn var sagður norskur í yfirlýsingu forsetans á degi Leifs Eiríkssonar árið 1975.

Gerald Ford var forseti Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.Vísir/AFP
Ríkisstjórnir Íslands og Noregs höfðu þá komið sér saman um það að alþjóðasamfélaginu bæri að tala um Leif sem norrænan mann (e. Norse). Við yfirlestur í Hvíta húsinu var orðinu „norse“ þó breytt í „norwegian,“ sem reitti Íslendinga til reiði. Í erindi til Hvíta hússins vegna málsins fullyrðir Haraldur að hver einn og einasti Íslendingur sé stoltur af Leifi Eiríkssyni og afrekum hans.  

Haraldur vísar einnig til þess í erindi sínu að svipað ósætti hafi komið upp þegar 9. október var fyrst gerður að degi Leif Eiríkssonar í Bandaríkjunum árið 1964. Morgunblaðið greindi frá því á sínum tíma að Noregur hefði þá gripið tækifærið til að helga sér málið og sent Leif Eriksen, sextán ára norskan dreng, með víkingaöxi með gjöf til Bandaríkjastjórnar.

Í fréttatilkynningu frá Bandaríkjunum um gjöfina hafi þá sagt að hin upprunalegi Leifur Eiríksson hafi fæðst í Noregi. Þetta vakti sömuleiðis gremju hjá Íslendingum, enda benda heimildir til þess að Leifur hafi fæðst hér á Íslandi.

Svo virðist sem athugasemdir Haralds hafi náð eyrum Bandaríkjaforseta, enda var aftur talað um víkinginn sem norrænan mann þann 9. október ári síðar.

Memo Monday, Subject: Icelandic Protest Regarding Leif Erikson Day ProclamationIn September 1975 President Ford issued...

Posted by Gerald R. Ford Presidential Library on 12. október 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×