Erlent

Obama: Verðum að muna að við erum öll í sama liði

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Joe Biden varaforseti var við hlið Obama þegar hann ávarpaði fjölmiðla nú fyrir stuttu og slógu þeir á létta strengi á tilfinningaþrunginni stund.
Joe Biden varaforseti var við hlið Obama þegar hann ávarpaði fjölmiðla nú fyrir stuttu og slógu þeir á létta strengi á tilfinningaþrunginni stund. Vísir/Getty

Barack Obama ávarpaði fjölmiðlamenn úr Rósagarðinum við Hvíta húsið rétt í þessu. Honum við hlið var varaforseti hans, Joe Biden. Í ávarpi sínu lagði Obama áherslu á að fólk væri bjartsýnt og vongott, sem og að Bandaríkjamenn væru ein heild.

„Allir eru leiðir þegar þeir tapa kosningum, en daginn eftir verðum við að muna að við erum öll í sama liði,“ sagði forsetinn.

Hann sagði einnig að hann hefði talað við Trump símleiðis í gærkvöldi og óskað honum til hamingju með sigurinn. Hann bindi miklar vonir um að Trump gangi vel í forsetatíð sinni og að hann nái að sameina klofna þjóð.

„Við erum fyrst og fremst Bandaríkjamenn. Við viljum öll það besta fyrir landið okkar. Það er það sem ég skynjaði í orðum herra Trump í gær. Það er það sem ég skynjaði þegar ég talaði við hann sjálfur og það taldi í mig kjark. Það er það sem landið okkar þarfnast, samheldni. Virðing fyrir stofnunum samfélagsins, virðing fyrir því hvernig við lifum lífinu okkar, virðing fyrir lögunum og virðing fyrir hvort öðru.“

Obama sagðist jafnframt vera mjög stoltur af Clinton og hennar kosningabaráttu, framboð hennar hafi verið innblástur fyrir fjölda fólks og stúlkna um heim allan. Hann sagðist bera miklar vonir til þess að Clinton hjónin haldi áfram að vinna í þágu Bandaríkjanna um heim allan. 

Mikilvægt að ungt fólk missi ekki dampinn

Forsetinn nýtti tækifærið einnig og ávarpaði ungt fólk beint, sem mörg hver voru að kjósa í fyrsta skipti og öðluðust jafnvel áhuga á stjórnmálum í fyrsta sinn í baráttunni.

„Svona eru kosningabaráttur, þetta er eðli lýðræðis. Það er oft erfitt og umdeilt, það er ekki alltaf hvetjandi. En við unga fólkið sem fékk áhuga á stjórnmálum í fyrsta skipti í kosningunum og eru mörg hver vonsvikin vil ég segja að þið verðið að halda í metnaðinn. Ekki verða tortryggin. Ekki halda í eina mínútu að þið getið ekki haft áhrif. Clinton sagði í morgun að það sé þess virði að berjast fyrir því sem er rétt. Og stundum tapar maður rifrildi og stundum tapar maður kosningum,“ sagði Obama

„Stundum gerast hlutir sem sumum þykir framför og öðrum þykir afturför. Og það er allt í lagi. Ég hef tapað kosningum, þannig eru stjórnmál stundum. Við gerum okkar besta við að sannfæra fólk um að við höfum rétt fyrir okkur og svo kýs fólk. Ef við töpum þá lærum við af mistökum okkar.“

Ræðu Obama var streymt á Facebook síðu CNN og má sjá hana í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×