Fótbolti

OB vann Íslendingaslaginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ari Freyr í landsleik.
Ari Freyr í landsleik. Vísir/andri marinó
Ari Freyr Skúlason og Hallgrímur Jónasson voru í sigurliði í Íslendingarslag í dönsku úrvalsdeildinni, en OB vann FCK 1-0.

Ari Freyr og Hallgrímur spiluðu báðir allan leikinn fyrir OB sem vann með sjálfsmarki Mathias Jörgensen sex mínútum fyrir leikslok.

Rúrik Gíslason var í byrjunarliði FCK, en honum var skipt af velli fyrir Björn Bergmann Sigurðarson sem spilaði síðasta stundarfjórðunginn.

FCK er í öðru sæti deildarinnar, en OB er í botnabaráttunni; í tíunda sæti af tólf liðum með 22 stig, sjö stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×