Skoðun

Óafgreitt frumvarp um fjárhættuspil

Ögmundur Jónasson skrifar
Frá fyrra kjörtímabili liggur fyrir óafgreitt frumvarp sem ætlað er að taka á „spilavandanum“. Velta happdrætta og fjárhættuspila á Íslandi nemur hátt í á annan tug milljarða króna. Við búum jafnframt við einhverja lökustu lagaumgjörð og regluverk sem fyrirfinnst í okkar hluta heimsins. Fáum málum hefur mér fundist eins brýnt að taka á og einmitt þessu.

En það er ekki hlaupið að því, enda rík tregðulögmál að verki jafnt innan sem utan veggja Alþingis. Ég hef stundum orðað það svo að tveir aðilar sé háðir spilafíkninni, sá sem lætur peninginn af hendi og hinn sem við honum tekur. Vandinn er sá að viðtakendur fjárins eru aðilar sem vinna þjóðþrifaverk í samfélaginu og nefni ég Slysavarnarfélagið Landsbjörg sem dæmi um slíka starfsemi sem öllum ber saman um að þurfi að standa fjárhagslegan vörð um.

Á síðustu misserum var unnin vönduð stefnumótunarvinna á þessu sviði. Starfshópur á vegum innanríkisráðuneytisins kannaði í þaula lagaumgjörð annarra landa og síðan voru settar fram tillögur í anda þess besta sem við töldum okkur finna, einkum þegar litið er til Norðurlandanna. Leitað var eftir nánu samstarfi við rekstraraðila spilakassa hér á landi og var hið almenna viðhorf af þeirra hálfu jákvætt og mótaðist af samfélagslegri ábyrgð.

Ákveðið var að stíga fyrstu skref í átt til breytinga með tvennum hætti. Sett yrði á laggirnar Happdrættisstofa sem hefði með höndum að beina fjármagni til forvarna og endurhæfingar. Hún annaðist ekki slíkt sjálf en væri til ráðgjafar um farveg fjármuna. Í annan stað hefði hún eftirlitshlutverki að gegna gagnvart rekstraraðilum á þessu sviði. Í þriðja lagi væri hún stjórnvöldum til ráðgjafar. Hitt atriðið sem hrint yrði í framkvæmd þegar í stað snýr að fjárhættuspilum á netinu. Reistar yrðu skorður við netspilun, en jafnframt fengju innlendir aðilar leyfi til að starfrækja slíka starfsemi en með afgerandi takmörkunum.

Lagafrumvarpi sem lagt var fram af minni hálfu fylgdi greinargerð þar sem kortlögð var framtíðarskipan málaflokksins; öll þessi starfsemi yrði sett undir sama hatt, dregið úr samkeppni en fjármagnið nýtt á markvissari en jafnframt ábyrgari hátt en nú er.

Frumvarpið er til staðar. Stefnumótunarvinna liggur fyrir. Nú verður spurt um vilja nýrrar ríkisstjórnar og Alþingis.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×