SUNNUDAGUR 19. MAÍ NÝJAST 21:03

Skyldusigur Börsunga í mígandi rigningu

SPORT

Nýtt tímarit um heimili og mat

Fréttablaðið Lífið 10. maí 2012 12:00
Hjónin Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson, hér ásamt dætrum sínum Kaju og Leu, undirbúa útgáfu veftímaritsins Home & Delicious sem fjallar um heimili og mat.
Hjónin Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson, hér ásamt dætrum sínum Kaju og Leu, undirbúa útgáfu veftímaritsins Home & Delicious sem fjallar um heimili og mat. FRÉTTABLAÐIÐ
„Íslendingar hafa alltaf hugsað vel um heimili sín og þeim þykir mörgum gaman að elda,“ segir innanhúshönnuðurinn Halla Bára Gestsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson ljósmyndari, vinna nú að stofnun nýs veftímarits um heimili og mat.

Tímaritið ber nafnið Home & Delicious en efnistök blaðsins eru heimili, matur og allt sem því fylgir. Tímaritið verður gefið út bæði á íslensku og ensku. Íslenskur bragur verður þó að á blaðinu þar sem verður allt frá innlitum inn á íslensk heimili og uppskriftum með íslensku hráefni. „Netið er lifandi miðill sem býður upp á óteljandi möguleika og við finnum að það er áhugi fyrir blaði á borð við þetta. Við vinnum mestallt efnið sjálf og verðum með fjölbreytta flóru.“

Halla Bára og Gunnar eru alls ekki ókunnug fjölmiðlum en þau stofnuðu og ritstýrðu blöðunum Lifun og Veggfóðri. „Svo fluttum við til Ítalíu þar sem ég lærði innanhúshönnun en var alltaf með það á bak við eyrað að beina sjónum mínum að skrifum á þessum vettvangi. Það var svo fyrst í vor sem við settumst niður og ákváðum að taka upp þráðinn að nýju eftir að hafa velt þessu fyrir okkur í vetur,“ segir Halla Bára en fyrsta tölublað Home and Delicious kemur út í júní.

Þangað til verður hægt að fylgjast með Höllu Báru og Gunnari á bloggsíðunni Homeanddelicious.com þar sem þau deila ýmsum hugmyndum varðandi heimili og mat en á þeirri síðu verður einnig hægt að nálgast blaðið. -áp

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lífið 19. maí 2013 18:45

Dorrit mætti í íslenskri hönnun

Heklugos var haldið í annað sinn síðastliðinn fimmtudag á Ásbrú í Eldey frumkvöðlasetri þar sem rúmlega 500 manns fjölmenntu á viðburðinn til að kynna sér hönnun á Suðurnesjum. Heiðursgestir voru Óla... Meira
Lífið 19. maí 2013 13:00

Stórfurðulegir skór

Það voru margir sem ráku upp stór augu þegar þúsundþjalasmiðurinn Julianne Hough rölti í gegnum LAX-flugvöll á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 12:00

Ólympíuhafi í það heilaga

Jessica Ennis, Ólympíumeistarinn í sjöþraut, brosti sínu blíðasta um helgina þegar hún gekk að eiga unnusta sinn Andy Hill í St. Michael and All Angels-kirkjunni í Derbyshire á Englandi. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:30

Nýr skemmtistaður opnar á Hverfisgötu

Glænýr skemmtistaður sem ber heitið Reykjavik Beats opnaði á Hverfisgötu 46 á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:00

Fyndin og kynþokkafull

Kristen Wiig hefur sýnt það og sannað í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live að hún er ein fyndnasta kona heims. Hún er einnig afar kynþokkafull eins og sést í nýjasta hefti tímaritsins Harper's Baza... Meira
Lífið 19. maí 2013 10:00

Já, þetta er fleginn kjóll!

Leikkonan Amy Adams var í ansi flegnum kjól á setti myndarinnar American Hustle fyrir helgi. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:45

"Ég er bara mjög ánægður"

"Ég er bara mjög ánægður," segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson eftir úrslitin í Eurovision í gærkvöldi í meðfylgjandi viðtali sem tekið var við hann. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:00

Þeir hræktu framan í mig

Leikarinn Zach Galifianakis hefur slegið rækilega í gegn í Hangover-myndunum. Hann þarf sjálfur ekki að hafa áhyggjur af timburmönnum þar sem hann hætti að drekka fyrir stuttu. Meira
Lífið 19. maí 2013 17:00

Hver er þessi Peter?

Felix Bergssyni var tíðrætt um vin sinn Peter í lýsingum sínum af Eurovision í gær. En hver er maðurinn? Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Lokaorð Eyþórs til þjóðarinnar fyrir kvöldið

Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur brot úr laginu Ég á líf til þjóðarinnar í myndskeiðinu. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Greinilega ekkert stressaðir fyrir kvöldið

Það mætti halda að Pétur Örn Guðmundsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Örlygur Smári séu í nettu kæruleysiskasti þegar þetta viðtal er tekið. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:30

Eurovisionhópurinn í góðum fíling á leið í höllina

Það fer ekki á milli mála að stemmarinn er mjög góður hjá Íslendingunum í Malmö. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:00

Táraðist yfir kommentakerfunum

Enginn þekkir mann betur en eiginkonan og haft er fyrir satt að það megi ráða í innræti manna af framkomu þeirra við fjölskyldu sína. Samkvæmt því þarf þjóðin ekki að kvíða forsætisráðherratíð Sigmund... Meira
Lífið 18. maí 2013 13:30

Eyþór klæddist hvíta jakkanum

Eyþór Ingi Gunnlaugsson setti inn þessa mynd af sér á Facebook í hádeginu þegar hann var nýbúinn að ganga um í höllina í Malmö með eftirfarandi skilaboðum á ensku: Meira
Lífið 18. maí 2013 13:00

Segir nei við lýtaaðgerðum

Christy Turlington er af mörgum talin hin eina, sanna ofurfyrirsæta. Hún hefur átt góðu gengi að fagna síðan hún byrjaði kornung í bransanum en í dag er hún 44ra ára. Meira
Lífið 18. maí 2013 12:00

Klárlega kjóll kvöldsins

Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria lét svo sannarlega taka eftir sér á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Meira
Lífið 18. maí 2013 11:00

Erfitt að gera upp á milli þessara tveggja

Leikkonan Jennifer Aniston og ofurfyrirsætan Kate Moss eru meðal fegurstu kvenna heims. Meira
Lífið 18. maí 2013 10:00

Poppstjarna í bílslysi

Poppstjarnan George Michael slasaðist lítillega þegar hann lenti í bílslysi í London á fimmtudag. Meira
Lífið 18. maí 2013 09:00

Finnst Rihanna kynþokkafyllst

Ungstirnið Miley Cyrus var nýlega valin heitasta kona heims af tímaritinu Maxim. Meira
Lífið 18. maí 2013 22:00

Vill fyndna kærustu

Leikarinn Chris Pine fer með hlutverk í kvikmyndinni Star Trek Into Darkness. Hann var nýverið gestur í spjallþættinum Ellen DeGeneres og var þá inntur eftir því hvernig konu hann heillaðist helst af. Meira
Lífið 18. maí 2013 12:00

Adele er best fyrir flughrædda

Lagið Someone like you með bresku söngkonunni Adele hentar best til að róa taugar flughræddra, ef marka má rannsókn sem kvíðasálfræðingurinn Dr. Becky Spelman framkvæmdi fyrir tónlistarveituna Spotify... Meira
Lífið 18. maí 2013 11:00

Svíarnir leggja allt undir í Eurovison

"Þetta var frábær upplifun og stemmningin í höllinni var vægast sagt rosaleg. Svíar leggja greinilega allt undir því þeir eru líka með hrikalega flott lag í keppninni í ár,“ segir Kristín Inga J... Meira
Lífið 18. maí 2013 09:30

Sprettreið um hverfið

"Þetta er hjólasprettreið og keppt er í tveimur flokkum; 15 kílómetra leið sem nefnist Fransbrauð og 30 kílómetra leið sem kallast Rúgbrauð,“ segir Böðvar Guðjónsson, talsmaður Kex hostels, um s... Meira
Lífið 18. maí 2013 09:00

Busta Rhymes notaði lag Jakobs án leyfis

Jakob Frímann Magnússon ætlar að hafa samband við bandarísku höfundarréttarsamtökin ASCAP vegna notkunar Rhymes á laginu Burlesque in Barcelona. Meira
Lífið 18. maí 2013 08:30

Man fyrst eftir Pretty Woman

Fyrsta kvikmyndin sem leikkonan Emma Watson man eftir að hafa séð er Pretty Woman með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Í viðtali við W segist Watson hafa verið sjö ára gömul þegar hún sá myndina. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Nýtt tímarit um heimili og mat
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000