Golf

Nýtt tímabil á PGA-mótaröðinni hefst formlega um helgina

Jarrod Lyle hefur nú baráttu sína á golfvellinum á ný.
Jarrod Lyle hefur nú baráttu sína á golfvellinum á ný. Getty
Nýtt tímabil á PGA-mótaröðinni hefst formlega á fimmtudaginn en Frys.com Open mótið fer fram á Silverado vellinum í Kaliforníu. Margir af bestu kylfingum PGA-mótaraðarinnar taka sér oft frí á þessum tíma en þrátt fyrir það eru nokkrar Ryder-bikar stjörnur skráðar til leiks.

Þar ber helst að nefna Jimmy Walker sem á titil að verja en Matt Kuchar, Hunter Mahan og Lee Westwood verða einnig með.

Þrátt fyrir að augu flestra verði á Walker, sem sigraði á þremur mótum á síðasta tímabili og spilaði frábærlega í Ryder-bikarnum á Gleneagles, hefur saga Jarrod Lyle vakið mikla athygli en hann tryggði sér sæti í mótinu í gegn um úrtökumót sem kláraðist í gær.

Lyle greindist með hvítblæði í annað sinn í mars árið 2012 en hann hafði þá leikið á PGA-mótaröðinni þrjú ár í röð. Eftir greininguna tók við lyfjameðferð og var hann frá í rúma 18 mánuði en hann kom til baka á golfvöllinn í nóvember árið 2013 og tók þátt í Ástralska meistaramótinu.

Nú virðist Lyle vera búinn að jafna sig nógu vel til þess að spila við þá bestu á ný en hann mun fá tækifæri í 20 PGA-mótum á komandi tímabili til þess að tryggja sér varanlegan þátttökurétt á mótaröðinni.

Það verður því áhugavert að sjá hvernig Lyle gengur um helgina en ljóst er að margir golfáhugamenn eiga eftir að styðja hann til afreka á komandi vikum og mánuðum.

Mótið verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsending frá fyrsta hring klukkan 21:00 á fimmtudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×