Glamour

Nýtt símahulstur gerir selfie myndirnar fullkomnar

Ritstjórn skrifar
Fyrirsætan Stella Maxwell nýtur stuðnings selfie ljóssins á hulstrinu sínu.
Fyrirsætan Stella Maxwell nýtur stuðnings selfie ljóssins á hulstrinu sínu. Mynd/Getty
Sérfræðingar eru sammála því að það allra mikilvægasta sem þarf fyrir flotta selfie mynd er rétt birta. Á seinasta árinu hafa LuMee selfie hulstrin orðið ansi vinsæl en þau eru með innbyggðu ljósi sem gerir meira fyrir andlitið heldur en nokkurn tíman photoshop forrit. 

Nú hefur verið gefin út ný útgáfa af LuMee hulstrunum sem lofa ennþá betri selfie myndum en nýja týpan heitir LuMee Duo. Það sem gerir Duo útgáfuna svona frábæra er að núna er einnig ljós aftan á hulstrinu svo að loksins geta hópmyndirnar verið fullkomnar. Einnig hefur verið bætt takka til þess að stilla birtustigið á ljósinu. 

Þessi nýjung mun án efa vera byltingakennd fyrir Instagram notendur sem og aðra sem elska að taka fallegar myndir af sjálfum sér og öðrum. 

Nýju hulstrin.Mynd/Skjáskot





×